Stórsigur gegn Marokkó

Leikmenn þakka fyrir sig eftir leikinn í dag.
Leikmenn þakka fyrir sig eftir leikinn í dag. Ljósmynd/Twitter-síða HSÍ.

U21 árs landslið karla í handknattleik vann öruggan sigur á Marokkó, 35:18, í leik liðanna á heimsmeistaramótinu í Alsír í dag.

Íslenska liðið hefur þar með unnð alla fjóra leiki sína í D-riðli á mótinu. Króatía hefur unnið þrjá leiki í sama riðli en leikur við Alsír í kvöld.

Ísland mætir Króötum í lokaleik riðilsins.

Mörk Íslands í dag: Aron Dagur Pálsson 6,  Sigtryggur Daði Rúnarsson 5, Óðinn Þór Ríkharðsson 5, Kristján Örn Kristjánsson 5, Elliði Snær Viðarsson 5, Dagur Arnarsson 3, Hákon Daði Styrmisson 2, Þorgeir Bjarki Davíðsson 2, Ómar Ingi Magnússon 2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert