Sigrún Birna í Aftureldingu

Sigrún Birna í leik með Gróttu.
Sigrún Birna í leik með Gróttu. Ljósmynd/Facebook-síða Aftureldingar

Sigrún Birna Arnardóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild Aftureldingar. Hún kemur til félagsins frá Fylki, en hún hefur einnig leikið með Gróttu. 

Sigrún er fædd árið 1994 og getur spilað sem miðjumaður og skytta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert