ÍBV framlengir við þrjá leikmenn

Guðjón Örn Sigtryggsson, Kristrún Hlynsdóttir, Ester Óskarsdóttir, Magnús Stefánsson og …
Guðjón Örn Sigtryggsson, Kristrún Hlynsdóttir, Ester Óskarsdóttir, Magnús Stefánsson og Valgerður Guðjónsdóttir við undirskriftina. Ljósmynd/ÍBV

Handknattleiksdeild ÍBV skrifaði undir samninga við Kristrúnu Hlynsdóttur, Ester Óskarsdóttur og Magnús Stefánsson, sem öll hafa leikið stórt hlutverk í liðum félagsins undanfarin ár. Samningur Kristrúnar er til tveggja ára en Ester og Magnús gerðu eins árs samning.

Í tilkynningu frá ÍBV segir að félagið sé mjög ánægt með að leikmennirnir skuli hafa valið að leika áfram fyrir félagið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert