Sigrar hjá Val og Fram

Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst í liði Fram ásamt Kareni …
Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst í liði Fram ásamt Kareni Knútsdóttur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Kvennalið Vals og Fram unnu leiki sína í fyrstu umferð Ragnarsmótsins í handknattleik sem fram fer á Selfossi. Meist­ara­flokk­ar karla og kvenna keppa á mót­inu, en það er haldið í 27. skipti til minn­ingar um Ragn­ar Hjálm­týs­son.

Fram hafði betur gegn ÍBV, 36:34. Þórey Rósa Stefánsdóttir og Karen Knútsdóttir skoruðu tíu mörk hvor fyrir Fram. Sandra Erlingsdóttir var markahæst í liði ÍBV með 11 mörk og Díana Kristín Sigmarsdóttir skoraði níu. 

Valur hafði betur gegn Selfossi, 23:19. Kristín Guðmundsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Val og Diana Satkauskaite gerði fimm. Hjá Selfossi voru það Hulda Dís Þrastardóttir og Perla Ruth Albertsdóttir sem skoruðu mest eða fjögur mörk hvor. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert