Guðjón og Alexander meistarar meistaranna

Alexander Petersson lyftir bikarnum í leikslok.
Alexander Petersson lyftir bikarnum í leikslok. Ljósmynd/Heimasíða þýska handknattleikssambandsins

Rhein-Neckar Löwen hafði betur gegn Kiel í Meistarabikar þýska handboltans í kvöld. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 28:28 en Löwen hafði betur í vítakeppni, en Jerry Tollbring jafnaði á síðustu sekúndu leiksins fyrir Rhein-Neckar Löwen.  

Alexander Petersson skoraði fjögur mörk fyrir Löwen en Guðjón Valur Sigurðsson var ekki á meðal markaskorara liðsins. Alfreð Gíslason þjálfar Kiel. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert