Ólafur farinn frá Stjörnunni

Ólafur Gústafsson er farinn til Danmerkur á ný.
Ólafur Gústafsson er farinn til Danmerkur á ný. mbl.is/Árni Sæberg

Ólafur Gústafsson lék ekki með Stjörnunni, eins og ráð hafði verið fyrir gert, þegar liðið gerði jafntefli, 25:25, við Fram í Olís-deild karla í handknattleik í gærkvöld. Hann hefur samið við Kolding í Danmörku, eins og áður hefur komið fram, og heldur þangað í dag.

Ólafur hefur verið í lykilhlutverki í Stjörnuliðinu og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins leita nú Stjörnumenn logandi ljósi að manni til að fylla hans skarð, innanlands sem utan. Þeir hafa til þess nokkurt svigrúm því ekki verður lokað fyrir félagaskipti til íslenskra liða fyrr en 1. nóvember. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert