Egill sagður vera á leið til Stjörnunnar

Egill Magnússon.
Egill Magnússon. mbl.is/Golli

Handknattleiksmaðurinn Egill Magnússon er sagður vera á leið frá danska úrvalsdeildarliðinu Tvis Holstebro til Stjörnunnar.

Vísir hefur heimildir fyrir þessu en Agli er ætlað að fylla skarð stórskyttunnar Ólafs Gústafssonar sem yfirgaf Garðabæjarliðið á dögunum og gekk í raðir danska úrvalsdeildarliðsins Kolding.

Egill lék með Stjörnunni áður en hann hélt út í atvinnumennskuna fyrir tveimur árum. Hann hefur hins vegar lítið komið við sögu með Holstebro en Egill hefur verið afar óheppinn með meiðsli þann tíma sem hann hefur verið hjá danska liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert