Tólf marka sigur hjá HK

Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir skoraði 5 mörk fyrir HK.
Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir skoraði 5 mörk fyrir HK. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

HK vann öruggan sigur gegn Fylki, 30:18, í Grill66-deild kvenna í handknattleik en liðin áttust við í Digranesi í kvöld.

HK var 14:10 yfir í hálfleik en í þeim síðari jókst munurinn jafnt og þétt. Sigríður Hauksdóttir var markahæst í liði HK með 6 mörk, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir skoraði 5 og þær Elva Arinbjarnar og Kolbún Arna Gunnarsdóttir skoruðu 4 mörk hvor.

Hrafnhildur Irma Jónsdóttir var atkvæðamest í liði Fylkis með 4 mörk María Ósk Jónsdóttir skoraði 3.

HK er með 4 stig eftir tvo leiki en Fylkir er án stiga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert