Verður Egill með á sunnudaginn?

Egill Magnússon.
Egill Magnússon. mbl.is/Golli

Vonir standa til þessa að Egill Magnússon verði orðinn gjaldgengur með handknattleiksliði Stjörnunnar áður en dagurinn í dag verður á enda. Þetta hefur Morgunblaðið eftir heimildum og að hann skrifi undir samning við Garðabæjarliðið sem gildir fram á næsta vor.

Agli er ætlað að fylla í skarð sem myndaðist í Stjörnuliðinu við brotthvarf Ólafs Gústafssonar. Ólafur samdi við Kolding í Danmörku á dögunum og fór utan á þriðjudaginn eftir að hafa leikið einn leik með Stjörnunni í Olís-deildinni.

Gangi allt eftir í dag er ekki útilokað að Egill verði í leikmannahópi Stjörnunnar sem sækir Aftureldingu heim í Olís-deildinni á sunnudagskvöld.

Egill, sem er skytta góð og á fjölda landsleikja að baki með yngri landsliðunum, hefur verið samningsbundinn danska úrvalsdeildarliðinu Team Tvis Holstebro á Jótlandi frá sumrinu 2015. Leiktíðina 2014/2015 sló hann í gegn með Stjörnuliðinu, þá aðeins á 18 ári.

Sjá nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins sem kom út í morgun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert