Stefán Rafn markahæstur í stórsigri

Stefán Rafn Sigurmannsson
Stefán Rafn Sigurmannsson Ljósmynd/Pick Szeged

Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði sex mörk og var markahæstur hjá Pick Szeged sem hafði betur gegn Csurgói, 36:25, á útivelli í ungversku A-deildinni í handbolta í dag. 

Pick Szeged hefur farið mjög vel af stað í ungversku deildinni og unnið alla fimm leiki sína til þessa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert