B-deildarlið Bergischer fékk Wetzlar, sem leikur í A-deildinni, í heimsókn í þýsku bikarkeppninni í handbolta í dag. Eftir spennandi leik hafði Wetzlar betur, 28:27. Arnór Þór Gunnarsson átti fínan leik í liði Bergischer og skoraði fimm mörk en það dugði ekki til.
Tapið var það fyrsta hjá Arnóri og félögum, en liðið er með fullt hús stiga í B-deildinni eftir níu umferðir.