Viggó með flottan leik í naumum sigri

Viggó Kristjánsson
Viggó Kristjánsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslendingaliðið West Wien vann nauman 29:28-sigur á Krems, 29:28 í austurrísku A-deildinni í handbolta í dag. Viggó Kristjánsson átti mjög fínan leik hjá West Wien og skoraði sjö mörk og Ólafur Bjarki Ragnarsson bætti við einu.  

Hannes Jón Jónsson þjálfar West Wien sem er í 4. sæti með 10 stig eftir átta umferðir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert