Nú viljum við breyta til

Rúnar Kárason.
Rúnar Kárason. mbl.is/Golli

Rúnar Kárason, landsliðsmaður í handknattleik, hefur gengið frá þriggja ára samningi við danska úrvalsdeildarliðið Ribe-Esbjerg og mun hann ganga til liðs við félagið næsta sumar.

Rúnar hefur leikið með þýska liðinu Hannover-Burgdorf frá árinu 2013 en þar áður lék hann með þýsku liðunum Füchse Berlin, Bergischer, Grosswallstadt og Rhein-Neckar Löwen en örvhenta skyttan yfirgaf Fram eftir tímabilið 2009 og hélt út í atvinnumennskuna.

„Ég er bara mjög spenntur fyrir þessu og hlakka til að takast á við nýja áskorun. Ég og konan mín ákváðum þegar ég skrifaði undir síðasta samninginn við Hannover að það yrði minn síðasti samningur í Þýskalandi. Ég er að spila mitt níunda tímabil hér en nú viljum við breyta til,“ sagði Rúnar í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld.

„Þetta hefur verið frekar leiðinleg staða hjá mér með Hannover vegna lítils spiltíma. Að fá nánast aldrei að spila hvað sem gengur á úti á vellinum er mjög svekkjandi. Ég hef að vísu fengið að spila töluvert á þessu tímabili og þó svo ég hafi ekki skorað mikið hef ég náð að halda mér í ágætu leikformi,“ sagði Rúnar.

Ribe-Esbjerg er sem stendur í 12. sæti af 14 í dönsku úrvalsdeildinni með fimm stig eftir sjö leiki.

„Það kom fjársterkur aðili til félagsins fyrir einu og hálfu ári og það er mikill hugur í forráðamönnum liðsins. Það á að gefa enn frekar í og styrkja liðið með stærri bitum en þeir hafa reynt við áður. Þessi fjársterki aðili sagðist vilja landa titlinum á næstu tveimur árum og nú er verið að reyna að safna liði til að standa undir því markmiði hans. “

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert