Landsliðskonan Birna Berg Haraldsdóttir skoraði fimm mörk og var markahæst í liði Århus sem tapaði 30:24 gegn toppliði Esbjerg í efstu deild danska handboltans í kvöld.
Julie Pontoppidan skoraði einnig fimm mörk fyrir Århus en staðan var jöfn, 13:13, í hálfleik. Toppliðið sýndi hins vegar mátt sinn og megin í síðari hálfleik og vann sex marka sigur.
Århus hefur 3 stig í næstneðsta sæti deildarinnar en Esbjerg hefur 12 stig í 1. sæti.