Stefán með eitt í toppslagnum

Stefán Rafn Sigurmannsson.
Stefán Rafn Sigurmannsson. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði eitt mark fyrir Pick Szeged gegn stórliði Veszprém í toppslag efstu deildar Ungverjalands í handknattleik. Lokatölur urðu 30:21 fyrir Veszprém á heimavelli Pick Szeged.

Staðan í hálfleik var 14:11 gestunum í vil en það var Norðmaðurinn Kent Robin Tønnesen sem var markahæstur hjá Veszprém með sjö mörk í dag.

Veszprém hefur 14 stig í toppsæti deildarinnar og á leik til góða á Pick Szeged sem einnig hefur 14 stig. Aron Pálmarsson var að sjálfsögðu ekki með Veszprém en reiknað er með að hann gangi til liðs við Barcelona á allra næstu dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert