Níu marka sigur Akureyrar

Brynjar Hólm Grétarsson skoraði 6 mörk.
Brynjar Hólm Grétarsson skoraði 6 mörk. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Akureyri vann stórsigur á ungmennaliði Hauka, 27:18, þegar liðin mættust í 1. deild karla í handknattleik, Grill 66-deildinni, í Höllinni á Akureyri í gær.

Brynjar Hólm Grétarsson og Hafþór Már Vignisson skoruðu 6 mörk hvor fyrir Akureyri en Orri Freyr Þorkelsson var atkvæðamestur hjá Haukum með 4 mörk.

Eftir fimm umferðir eru Akureyri og KA með 9 stig hvort, HK 8 og Þróttur 6. KA hefur hinsvegar verið úrskurðaður sigur í jafnteflisleik Akureyrarliðanna á dögunum, vegna ólöglegs leikmanns, og verður því með 10 stig, en Akureyri 8.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert