Stjarnan fór með sigur af hólmi, 32:29, þegar liðið mætti Fjölni í Dalhúsum í Grafarvogi. Stjarnan er nú taplaus í síðustu þremur leikjum, en liðið gerði jafntefli gegn Víkingi í síðustu umferð deildarinnar og bar sigur úr býtum gegn Gróttu í umferðinni þar á undan.
Egill Magnússon og Leó Snær Pétursson voru markahæstir í liði Stjörnunnar með sjö mörk hvor, en Kristján Orri Kristjánsson var atkvæðamestur í liði Fjölnis með níu mörk.
Stjarnan er í sjötta til sjöunda sæti deildarinnar með níu stig eftir þennan sigur, en Fjölnir er hins vegar í tíunda til ellefta sæti deildarinnar með tvö stig.