Sigurmarkið á lokasekúndunni

mbl.is/Eva Björk

Það var hörkuspenna þegar Afturelding fékk Val U í heimsókn í 1. deild kvenna í handknattleik, Grill 66-deildinni. Það var Jónína Líf Óskarsdóttir sem skoraði sigurmark Aftureldingar á lokasekúndunni, 22:21.

Afturelding var fimm mörkum yfir í hálfleik, 13:8, en spennusigurinn kom liðinu upp í fimmta sæti deildarinnar með 5 stig eftir sex leiki en Valsliðið er á botninum án stiga.

Þóra María Sigurjónsson var markahæst hjá Afturelding með 8 mörk en hjá Valsliðinu var Heiðrún Berg Sverrisdóttir markahæst með 9 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert