Viggó Kristjánsson heldur áfram að gera góða hluti með West Wien í austurrísku A-deildinni í handknattleik en hann var næstmarkahæstur í liðinu í 34:26-sigri á Bruck á heimavelli í kvöld.
Viggó skoraði átta mörk fyrir Vínarliðið, þar af tvö af vítalínunni, en staðan í hálfleik var 17:13 fyrir heimamenn sem leika undir stjórn Hannesar Jóns Jónssonar.
Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði þrjú mörk fyrir West Wien, sem er með 16 stig eftir 12 leiki í fjórða sæti deildarinnar.