Fjórtán sigrar í fjórtán leikjum

Arnór Þór Gunnarsson.
Arnór Þór Gunnarsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Arnór Þór Gunnarsson og félagar hans í Bergischer unnu fjórtánda sigurinn í jafnmörgum leikjum í þýsku B-deildinni í handknattleik í gærkvöld þegar þeir sóttu heim lið Konstanz og sigruðu, 30:26.

Arnór skoraði 6 mörk fyrir Bergischer sem er komið með yfirburðastöðu á toppi deildarinnar, 28 stig eftir 14 umferðir, og stefnir beint í 1. deildina á ný eftir að hafa fallið þaðan síðasta vor.

Fannar Þór Friðgeirsson náði ekki að skora fyrir Hamm sem vann Elbflorenz, 34:26. Hamm er í fimmta sæti deildarinanr með 18 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert