Holland er komið í undanúrslit á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta eftir 30:26-sigur á Tékklandi í dag. Staðan í hálfleik var 17:16 og var leikurinn lengst af.
Hollendingar voru hins vegar sterkari aðilinn í lokin og tryggðu sér sigur. Holland hefur leikið til úrslita gegn Noregi á tveimur af síðustu þremur stórmótum, en tapað í bæði skiptin.
Takist Noregi að vinna Rússland í kvöld mætast þau enn og aftur, nú í undanúrslitum.