Öruggt hjá ÍBV á Nesinu

Sandra Erlingsdóttir átti stórleik í kvöld.
Sandra Erlingsdóttir átti stórleik í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

ÍBV vann öruggan 34:24-sigur á Gróttu í Olísdeild kvenna í handbolta í kvöld. Sigurinn var aldrei í hættu og var staðan 19:10 í hálfleik.

Sandra Erlingsdóttir átti stórleik í liði ÍBV og skoraði 11 mörk. Karólina Bæhrenz var ekki mikið síðri með níu mörk. Lovísa Thompson skoraði sex fyrir Gróttu og Tinna Valgerður Gísladóttir fimm. 

ÍBV fór upp fyrir Fram með sigrinum og upp í þriðja sæti. Eyjakonur eru með 15 stig, fimm stigum minna en topplið Vals. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert