Sigvaldi Guðjónsson er í liði umferðarinnar í efstu deild Danmerkur í handbolta. Hornamaðurinn skoraði sjö mörk í 28:25-sigri á Kolding í gærkvöldi.
Þetta er í fyrsta skipti sem Sigvaldi er í liði vikunnar, en hann hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu með Århus á tímabilinu. Róbert Gunnarsson og Ómar Ingi Magnússon leika einnig með liðinu sem er í 7. sæti dönsku deildarinnar.