Fram U með sinn annan sigur

Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði átta mörk í kvöld.
Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði átta mörk í kvöld. Ljósmynd/Fram

Ungmennalið Fram vann sinn annan sigur í 1. deild kvenna, Grill 66-deildinni í kvöld. Fram mætti þá Aftureldingu á útivelli og hafði betur, 22:16.

Fram skoraði fyrstu fimm mörk leiksins og var yfir allan tímann. Afturelding náði að minnka muninn í 11:10 í upphafi síðari hálfleiks en þá skoraði Fram næstu fjögur mörk leiksins og lagði grunninn að sigrinum. 

Fram er í 8. sæti deildarinnar með fjögur stig og Afturelding í 6. sæti með sjö stig. 

Mörk Aftureldingar: Telma Rut Frímannsdóttir 5, Þóra María Sigurjónsdóttir 4, Hildur Karen Jóhannsdóttir 3, Hekla Rún Ámundadóttir 2, Jónína Líf Ólafsdóttir 1, Brynja Rögn Fossberg Ragnarsdóttir 1

Mörk Fram U: Lena Margrét Valdimarsdóttir 8, Ingunn Lilja Bergsdóttir 4, Svala Júlía Gunnarsdóttir 3, Erna Guðlaug Gunnarsdóttir 3, Guðlaug Einarsdóttir 1, Daðey Ásta Hálfdánsdóttir 1, Harpa Elín Haraldsdóttir 1, Jónína Hlín Hansdóttir 1

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert