West Wien þurfti að sætta sig við svekkjandi 32:32-jafntefli gegn Krems í A-deild Austurríkis í handbolta í kvöld. Krems skoraði jöfnunarmarkið þegar fjórar sekúndur voru eftir af leiknum.
Viggó Kristjánsson var markahæstur hjá West Wien með átta mörk og Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði þrjú. West Wien er í 5. sæti deildarinnar með 20 stig eftir 17 leiki.