Haukar fögnuðu sigri á Selfossi

Maria Pereira skoraði sjö mörk fyrir Hauka.
Maria Pereira skoraði sjö mörk fyrir Hauka. mbl.is/Kristinn Magnússon

Haukar fögnuðu sigri gegn Selfyssingum, 27:20, þegar liðin áttust við í Olís-deild kvenna í handknattleik á Selfossi.

Perla Ruth Albertsdóttir var markahæst í liði Selfyssinga með 8 mörk en hjá Haukunum var Maria Pereira atkvæðamest með 7 mörk.

Haukar eru í öðru sæti deildarinnar með 17 stig, þremur stigum á eftir toppliði Vals, en Selfoss er í 6. sætinu með 5 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert