Teitur æfir með sænsku meisturunum

Teitur Örn Einarsson.
Teitur Örn Einarsson. mbl.is/Árni Sæberg

Teitur Örn Einarsson, leikmaður Selfoss í handknattleik, er á leið til æfinga með sænska meistaraliðinu Kristianstad og skoðar aðstæður hjá félaginu á næstu dögum.

Þetta kemur fram á Vísi, en Teitur hefur farið mikinn með Selfossi í vetur og látið jafnframt mikið að sér kveða með yngri landsliðum Íslands.

Með Kristianstad leika þrír Íslendingar, þeir Arnar Freyr Arnarsson, Gunnar Steinn Jónsson og Ólafur Guðmundsson sem jafnframt er fyrirliði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert