Akureyri tilnefnir Brynjar Hólm

Brynjar Hólm Grétarsson.
Brynjar Hólm Grétarsson. Ljósmynd/Thorir O. Tryggvason.

Akureyri handboltafélag hefur tilnefnt Brynjar Hólm Grétarsson sem leikmann ársins 2017. Hann verður því fulltrúi félagsins þegar íþróttamaður Akureyrarbæjar verður valinn þann 24. janúar næstkomandi.

Brynjar er mikilvægur hlekkur í liði Akureyrar sem er í 2. sæti Grill 66 deildarinnar, stigi á eftir grönnum sínum í KA. Hann hefur skorað 37 mörk í 10 leikjum í deildinni ásamt því að hann er sterkur varnarmaður.

Hægt er að sjá umsögn Akureyrar um Brynjar með því að smella hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert