Arnór og Oddur markahæstir

Arnór Þór Gunnarsson í leik með Bergischer
Arnór Þór Gunnarsson í leik með Bergischer Ljósmynd/deutzmann.net

Arnór Þór Gunnarsson og lið hans Bergischer styrkti stöðu sína enn frekar á toppi þýsku 2. deildarinnar í handknattleik eftir auðveldan sigur á Dessauer á útivelli í kvöld, 31:15.

Staðan var 13:10 fyrir Bergischer í hálfleik, sem keyrði því yfir andstæðinginn eftir hlé og vann 16 marka sigur. Arnór Þór var markahæsti leikmaður vallarins með 7 mörk, en Bergischer er á toppi deildarinnar með 42 stig af 40 mögulegum.

Balingen vann gríðarlega öruggan sigur á Rhein-Vikings, 22:12. Oddur Gretarsson var allt í öllu hjá Balingen og var markahæstur með sjö mörk, en Sigtryggur Daði Rúnarsson skoraði eitt mark. Balingen er í 8. sæti deildarinnar með 25 stig eftir 22 leiki.

Þá skoraði Fannar Þór Friðgeirsson eitt mark fyrir Hamm sem vann heimasigur gegn Rimpar 27:22. Hamm er í þriðja sætinu með 31 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert