Mikið áfall fyrir Selfyssinga

Haukur Þrastarson.
Haukur Þrastarson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Haukur Þrastarson hinn stórefnilegi leikmaður Selfyssinga í handbolta varð fyrir því óláni að fingurbrotna í leiknum gegn Haukum í Olísdeildinni á Selfossi á sunnudaginn.

Haukur staðfesti þetta í samtali við mbl.is en hann átti stóran þátt í að tryggja Selfyssingum magnaðan sigur gegn Haukum eftir dramatískar lokamínútur. Haukur hefur átt frábært tímabil með Selfoss-liðinu og hefur stimplað sig sinn sem einn allra efnilegasti handboltamaður landsins. Hann er aðeins 16 ára gamall en hefur skorað 82 mörk í 18 leikjum Selfyssinga í Olísdeildinni í vetur.

„Ég braut fingur á skothendinni og kem væntanlega til með að vera frá keppni í sex vikur. Það er ansi svekkjandi að missa af næstu leikjum okkar í deildinni og bikarhelginni,“ sagði Haukur í samtali við mbl.is.

Haukur kemur til með að missa af síðustu fjórum leikjum Selfyssinga í deildinni en Selfoss er í 3. sæti í Olísdeildinni. Þá verður hann fjarri góðu gamni í bikarhelginni í Laugardalshöll 9.-10. mars en Selfoss mætir Haukum í undanúrslitunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert