Arnór enn og aftur með stórleik

Arnór Þór Gunarsson.
Arnór Þór Gunarsson. mbl.is/Árni Sæberg

Arnór Þór Gunnarsson og liðsfélagar hans í Bergischer höfðu betur gegn Eisenach á heimavelli sínum í þýsku B-deildinni í handbolta í dag, 38:24. Arnór er búinn að leika mjög vel á leiktíðinni og skoraði hann átta af mörkum Bergischer, sem er með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar.

Oddur Gretarsson skoraði fjögur og Sigtryggur Daði Rúnarsson eitt í öruggum 31:22-heimasigri Balingen á Hildesheim. Balingen er í 8. sæti deildarinnar með 33 stig. Fannar Friðgeirsson komst ekki á blað fyrir Hamm sem tapaði fyrir Bietigheim á útivelli, 31:27. Hamm er í 4. sæti með 36 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert