Gerpla tvöfaldur bikarmeistari

Gerpla fagnar bikartitlinum.
Gerpla fagnar bikartitlinum. Ljósmynd/Fimleikasambandið

Gerpla vann tvöfalt í bikarkeppninni í fimleikum í dag, en mótið fór fram í Björk í Hafnarfirði. Bikarkeppnin er spiluð sem liðakeppni þar sem allt að fimm keppendur mynda lið og keppa fyrir sitt félag. Þrjú sterkustu áhöldin telja svo til stiga.

Ármann hafnaði í 2. sæti og Björk tók 3. sætið. Gerpla var með yfirburði eða 1.400 stig fleiri en Ármann. 0,250 stig skildu að Gerplu og Björk í kvennaflokknum. Í karlaflokki varði Gerpla titilinn eftir sigur á sameinuðu liði Ármanns og Bjarkar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert