Arnór aftur upp í deild þeirra bestu

Arnór Þór Gunnarsson og félagar eru komnir upp í efstu …
Arnór Þór Gunnarsson og félagar eru komnir upp í efstu deild. mbl.is/Árni Sæberg

Arnór Þór Gunnarsson og liðsfélagar hans í Bergischer tryggðu sér í kvöld sæti í efstu deild þýska handboltans með 35:22-sigri á Wilhelmshavener á heimavelli sínum.

Arnór skoraði sex mörk í leiknum, en Bergischer er búið að vera með mikla yfirburði í deildinni í vetur og eru enn sjö umferðir eftir af deildarkeppninni.

Bergischer hefur unnið 29 leiki og aðeins tapað tveimur og er Arnór búinn að vera á meðal bestu mönnum deildarinnar. Bergischer féll úr deild þeirra bestu á síðustu leiktíð, en Arnór og félagar voru fljótir að tryggja sér sæti í efstu deild á ný. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert