Sjö mörk Guðjóns dugðu skammt

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mörk í dag.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mörk í dag.

Rhein-Neckar Löwen missti toppsæti sitt í þýsku efstu deildinni í handknattleik í dag eftir 25:25-jafntefli gegn Erlangen.

Guðjón Val­ur Sig­urðsson átti stórleik fyrir Löwen og skoraði sjö mörk og Al­ex­and­er Peters­son skoraði þrjú en það dugði ekki til og landi þeirra, Aðalsteinn Eyjólfsson, gerði þeim grikk.

Aðalsteinn er þjálfari Erlangen sem situr í 13. sæti með 23 stig. Löwen er nú einu stigi frá toppliði Flensburg sem vann sinn leik í dag en á þó leik til góða. Fjórar umferðir eru eftir af deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert