Ágúst Emil til liðs við Gróttu

Ágúst Emil Grétarsson við undirskriftina í dag.
Ágúst Emil Grétarsson við undirskriftina í dag. Ljósmynd/Grótta

Handknattleikskappinn Ágúst Emil Grétarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Gróttu en þetta kom fram í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér í dag. Ágúst er tvítugur hægri hornamaður, sem kemur til Gróttu frá ÍBV þar sem hann er uppalinn og spilaði hann með liðinu í Olísdeildinni á seinasta keppnistímabili.

Ágúst var einnig við æfingar og keppni með U-20 ára landsliði Íslands í sumar og kemur því til móts við Gróttuliðið í toppformi. „Ég er mjög spenntur fyrir komandi tímabili. Það er áskorun fyrir mig að spila í fyrsta sinn með öðru liði en ÍBV en Grótta er með er með skemmtilega blöndu af ungum og eldri leikmönnum og eins er Einar þjálfari mjög fær og hef ég fulla trú á því að ég geti bætt mig helling sem leikmaður og að komandi tímabil verði stórskemmtilegt,“ sagði Ágúst við undirskriftina í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert