Stefán markahæstur í stórsigri

Stefán Rafn Sigurmannsson var markahæstur í dag.
Stefán Rafn Sigurmannsson var markahæstur í dag. Ljósmynd/Pick Szeged

Stefán Rafn Sigurmannsson og liðsfélagar hans í ungverska handboltaliðinu Pick Szeged unnu sannfærandi sigur á Mezökövesdi í efstu deild í dag, 40:25. Stefán Rafn var markahæstur á vellinum með sex mörk. 

Pick Szeged hefur farið mjög vel af stað á tímabilinu og unnið alla fjóra leiki sína í deildinni til þessa og vann liðið auk þess PPD Zagreb í Meistaradeild Evrópu um helgina. Næsti leikur Pick Szeged er gegn franska liðinu Nantes í Meistaradeildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert