Bjarki Már skoraði tvö í Íslendingaslagnum

Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk fyrir Füchse Berlín í …
Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk fyrir Füchse Berlín í dag. AFP

Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk úr þremur skotum þegar lið hans Füchse Berlín vann 27:22-útisigur gegn Erlangen í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag. Gestirnir frá Berlín höfðu yfirhöndina allan leikinn og leiddu meðal annars með 19:10 þegar síðari hálfleikur var hálfnaður.

Heimamenn í Erlangen gerðu þá áhlaup en þeim tókst aldrei að brúa bilið og vann Füchse Berlín sanngjarnan fimm marka sigur þegar upp var staðið. Füchse Berlín er í níunda sæti deildarinnar eftir fyrstu fimm leiki sína með sex stig. 

Erlangen er í fimmtánda sætinu með 2 stig en Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari Erlangen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert