Jafnt í fyrsta leiknum

Kristófer Andri Daðason skoraði sjö mörk fyrir Víkinga í kvöld.
Kristófer Andri Daðason skoraði sjö mörk fyrir Víkinga í kvöld. Eggert Jóhannesson

Jafntefli varð niðurstaðan í fyrsta leik 1. deildar karla í handknattleik, Grill 66-deildarinnar, þegar Víkingur tók á móti Þrótti í kvöld en leikurinn endaði 21:21. Þróttur leiddi í hálfleik, 13:9.

Víkingum tókst hins vegar að minnka það forskot niður í síðari hálfleik en Kristófer Andri Daðason fór mikinn í liði Víkings og skoraði 7 mörk og Arnór Gauti Grettisson skoraði 6 mörk. Aron Valur Jóhannsson var atkvæðamestur í liði Þróttara með 6 mörk og Styrmir Sigurðsson skoraði 5 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert