Arnór Þór Gunnarsson og félagar í þýska handboltaliðinu Bergischer unnu sætan 31:30-útisigur á Stuttgart í efstu deild Þýskalands í dag. Sigurmarkið kom örfáum sekúndum fyrir leikslok.
Arnór hefur leikið afar vel í byrjun leiktíðar og skoraði hann sjö mörk í dag og var markahæstur ásamt Jeffrey Boomhouwer.
Bergischer er nýliði í deildinni og hefur farið vel af stað í ár. Eftir sex umferðir er liðið í fimmta sæti með átta stig.