Fyrsti landsliðshópur Einars Andra

ÍR-ingurinn Sveinn Andri Sveinsson er í U21 árs landsliðshópnum.
ÍR-ingurinn Sveinn Andri Sveinsson er í U21 árs landsliðshópnum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Einar Andri Einarsson, nýráðinn þjálfari U-21 árs landsliðs karla í handknattleik, hefur valið 20 manna æfingahóp.

U21 ára liðið mætir Frökkum í tveimur vináttuleikjum sem fram fara í Schenker-höllinni á Ásvöllum 26. og 27. þessa mánaðar.

Hópurinn er þannig skipaður:

Alexander Jón Másson, Gróttu
Andri Ísak Sigfússon, ÍBV
Andri Scheving, Haukum
Ásgeir Snær Vignisson, Val
Birgir Birgisson, FH
Bjarni Ófeigur Valdimarsson, FH
Daníel Griffin, ÍBV
Darri Aronsson, Haukum
Elliði Snær Viðarsson, ÍBV
Friðrik Hólm Jónsson, ÍBV
Hafþór Vignisson, Akureyri
Hannes Grimm, Grótta
Kristófer Andri Daðason, Víkingi
Orri Þorkelsson, Haukum
Pétur Árni Hauksson, ÍR
Sigþór Gunnar Jónsson, KA
Sveinn Andri Sveinsson, ÍR
Sveinn Jose Rivera, Gróttu
Sveinn Jóhannsson, ÍR
Teitur Einarsson, Kristianstad



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert