Friðrik í eins leiks bann

Friðrik Svavarsson missir af næsta leik.
Friðrik Svavarsson missir af næsta leik. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Friðrik Svavarsson, leikmaður Akureyrar, var í dag úrskurðaður í eins leiks bann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í leiknum gegn Fram í Olísdeildinni í handbolta á laugardaginn var.

Friðrik braut á Þorsteini Gauta Hjálmarssyni er hann fór illa í andlitið á skyttunni undir lok fyrri hálfleiks og fékk beint rautt spjald að launum.

HSÍ hefur nú úrskurðað Friðrik í eins leiks bann fyrir brotið og missir hann af leik Akureyrar og ÍBV næstkomandi sunnudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert