Meistararnir ekki í vandræðum með nýliðana

Steinunn Björnsdóttir var sterk í kvöld.
Steinunn Björnsdóttir var sterk í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslandsmeistarar Fram unnu í kvöld öruggan 29:19-sigur á nýliðum HK í Digranesinu. Framarar voru með mikla yfirburði í fyrri hálfleik og var staðan í hálfleik 14:4. HK tókst mun betur að skora í síðari hálfleik en forskotið reyndist of stórt.  

Steinunn Björnsdóttir skoraði ellefu mörk fyrir Fram, Ragnheiður Júlíusdóttir gerði fimm og Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði fimm mörk. Erla Rós Sigmarsdóttir varði 13 skot í markinu. 

Hjá HK var Díana Kristín Sigmarsdóttir markahæst með sjö mörk og Dajana Jovanovska gerði fjögur. Fram er í toppsæti deildarinnar með átta stig og HK í sjötta sæti með fjögur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert