Aron skoraði í stórsigri

Aron Pálmarsson skoraði eitt mark í stórsigri Barcelona gegn Sinfin.
Aron Pálmarsson skoraði eitt mark í stórsigri Barcelona gegn Sinfin. Ljósmynd/Uros Hocevar

Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Barcelona þegar liðið vann stórsigur á heimavelli sínum gegn Sinfin í spænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag en leiknum lauk með 43:19-sigri Barcelona.

Staðan í hálfleik var 20:8, Barcelona í vil, en liðið varð heimsmeistari félagsliða í Katar á föstudaginn síðasta eftir sigur á Füchse Berlín í úrslitaleik. Barcelona er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar eða 14 stig og hefur 4 stiga forskot á La Rioja sem er í öðru sætinu með 10 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert