Grótta jafnaði Fram á stigum

Gróttumenn höfðu betur gegn Fram.
Gróttumenn höfðu betur gegn Fram. mbl.is/Kristinn Magnússon

Grótta vann sinn annan sigur í Olísdeild karla í handbolta í kvöld er liðið lagði Fram á útivelli, 24:20. Fram var með 10:7-forystu í hálfleik en Gróttumenn voru sterkari í síðari hálfleik og sneru leiknum sér í vil. 

Jóhann Reynir Gunnlaugsson skoraði mest hjá Fram eða sex mörk og Leonharð Þorgeir Harðarson bætti við fimm mörkum. Valdimar Sigurðsson skoraði fjögur hjá Fram og Svavar Kári Grétarsson og Þorsteinn Gauti Hjálmarsson þrjú. 

Grótta og Fram eru nú í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar með fimm stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert