Íslendingalið skipa efstu sæti Noregs

Nökkvi Dan Elliðason og liðsfélagar hans í Arendal eru á …
Nökkvi Dan Elliðason og liðsfélagar hans í Arendal eru á toppnum í Noregi. mbl.is/Golli

Nökkvi Dan Elliðason og liðsfélagar hans í Arendal eru komnir á toppinn í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik eftir 31:29-útisigur gegn Bækkelaget í dag. Nökkvi komst ekki á blað í leiknum en Arendal er í efsta sæti deildarinnar með 11 stig eftir fyrstu sex umferðirnar.

Þeir Sigvaldi Björn Guðjónsson og Þráinn Orri Jónsson skoruðu báðir tvö mörk fyrir lið sitt Elverum þegar liðið vann 31:29-sigur gegn Bodø á útivelli en Elverum er í þriðja sæti deildarinnar með 9 stig eftir fyrstu sex leiki sína, tveimur stigum minna en topplið Arendal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert