Andrea markahæst hjá Kristianstad

Andrea Jacobsen átti góðan leik.
Andrea Jacobsen átti góðan leik. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðskonan í handbolta, Andrea Jacobsen, átti góðan leik fyrir Kristianstad í 27:27-jafntefli við Skara á útivelli í A-deild Svíþjóðar í kvöld. Andrea skoraði sjö mörk og var markahæst ásamt Sarah Carlström. 

Markmaðurinn Hafdís Renötudóttir var allan tímann á varamannabekk Boden sem tapaði á heimavelli fyrir Lugi, 26:22, í sömu deild. Boden er í botnsætinu með aðeins eitt stig eftir níu leiki og Kristianstad í sætinu fyrir ofan með þrjú stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert