Balingen upp í þriðja sætið

Oddur Gretarsson og liðsfélagar hans í Balingen eru komnir í …
Oddur Gretarsson og liðsfélagar hans í Balingen eru komnir í þriðja sæti þýsku B-deildarinnar. mbl.is/Golli

Oddur Gretarsson skoraði þrjú mörk úr þremur skotum fyrir Balingen þegar liðið skaust upp í þriðja sæti þýsku B-deildarinnar í handknattleik í dag eftir 36:29-útisigur gegn Wilhelmshavene. Oddur átti fínan leik en öll mörk hans komu af vítalínunni. Balinger er komið í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig og er nú einungis tveimur stigum frá toppliði Coburg sem er með 23 stig eftir fjórtán umferðir.

Þá skoraði Ragnar Jóhannsson eitt mark fyrir Hüttenberg sem tapaði með tveimur mörkum á heimavelli fyrir Elbflorens en leiknum lauk með 20:18-sigri gestanna frá Elbflorens. Hüttenberg er í fjórtánda sæti deildarinnar með 11 stig.

Markmaðurinn Aron Rafn Eðvarsson var ekki með Hamburg í dag vegna meiðsla þegar liðið tapaði á útivelli fyrir toppliði Cobururg, 32:28, en Hamburg er í ellefta sæti B-deildarinnar með 12 stig eftir fjórtán leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert