Breytingar á kvennalandsliðinu

Steinunn Hansdóttir.
Steinunn Hansdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Breytingar hafa orðið á leikmannahópi kvennalandsliðsins í handknattleik sem hélt til Noregs í morgun.

Þórey Anna Ásgeirsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, fór ekki með hópnum út vegna meiðsla og var Steinunn Hansdóttir, leikmaður Horsens HK, kölluð inn í hópinn í stað Þóreyjar. Þá þurfti Ester Óskarsdóttir úr ÍBV að draga sig út út hópnum vegna veikinda.

Kvennalandsliðið mætir Kína og B-landsliði Noregs í tveimur vináttuleikjum í Noregi í vikunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert