Kristianstad fékk skell

Teitur Örn Einarsson skoraði 3 mörk í dag.
Teitur Örn Einarsson skoraði 3 mörk í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sænska meistaraliðið Kristianstad fékk skell í sænska handboltanum í dag og tapaði 33:23 fyrir Alingsås á útivelli. Kristianstad er efst ásamt Malmö en Alingsås er nú aðeins stigi á eftir. 

Toppbaráttan í sænsku deildakeppninni harðnaði því nokkuð í dag. Kristianstad leikur í Meistaradeildinni og ef til vill tekur það sinn toll af liðinu. 

Ólafur Guðmundsson skoraði 5 mörk fyrir Kristianstad, Teitur Örn Einarsson skoraði 3 og Arnar Freyr Arnarsson eitt mark.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert