Enn einn stórleikurinn hjá Stefáni Rafni

Stefán Rafn Sigurmannsson.
Stefán Rafn Sigurmannsson. Ljósmynd/Pick Szeged

Stefán Rafn Sigurmannsson átti einn einn stórleikinn með liði Pick Szeged þegar liðið burstaði Ceglédi 39:23 í ungversku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.

Stefán Rafn skoraði 9 mörk í leiknum en hornamaðurinn hefur raðað inn mörkum með ungverska meistaraliðinu á tímabilinu og skemmst er að minnast þess þegar hann skoraði 11 mörk þegar Pick Szeged lagði franska meistaraliðið Paris SG í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.

Pick Szeged hefur unnið alla 15 leiki sína í deildinni og er með 10 stiga forskot á Veszprém sem á þrjá leiki til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert